Þjónustuborð/Handbók

Tengja eigið lén við Zolon

Fannar Freyr Jónsson
sendi þetta inn á Júlí 06, 2009 13:05

ATH! Ekki nota þessa aðferð ef þið eruð nú þegar með DNS hýsingu annarsstaðar nema þið viljið flytja DNS upplýsingar yfir til ISnic. Þetta á t.d. við þegar tölvupóstur er nú þegar á léninu. Ef við eruð í vafa hafið þá samband við þjónustufulltrúa með því að fylla út beiðni hér.

Ef um er að ræða nýtt lén hentar eftirfarandi leið vel:

Til að tengja þitt eigið lén.is við Zolon síðuna þína er einfaldast að stilla Áframsendingu veffangs hjá ISnic.

  1. Farðu inn á http://www.isnic.is/
  2. Skráðu þig inn með NIC auðkenninu þínu
  3. Veldu lénið sem á að stilla
  4. Smelltu á "Áframsenda veffang" takkann (við hliðina á listanum af lénum)
  5. Sláðu 93.95.224.91 inn í boxið fyrir neðan "Full vefslóð eða IP tala"
  6. Smelltu á Áfram
  7. Þá kemur staðfestingarsíða og velur þú Áfram þar aftur
  8. Bíða þangað til Isnic klárar uppsetningu
aframsending-veffangs.pngaframsending-veffang-ip-tala.png

Síðan inn í Zolon:

  1. Skráðu þig inn í Zolon
  2. Farðu undir Stillingar
  3. Undir svæðinu Lén seturðu inn lénið þitt (ATH án www og http://, t.d. www.len.is þarftu bara að setja len.is)

 Picture_1.png

 
Athugasemdir lokaðar fyrir þetta umræðuefni