Fannar Freyr Jónsson
sendi þetta inn á Desember 06, 2010 15:35
Hvernig á að setja Facebook Like takka á síður í Zolon

1. Skráðu þig inn í umsjónarkerfið með því að fara inn á http://hq.zolon.is/admin (eða [lénið þitt].is/admin)
2. Finndu vöruna/síðuna sem þú ætlar að setja LIKE takkann inn á.
3. Farðu í "Breyta" á vörunni/síðunni.
4. Smelltu á takkann sem er merktur á myndinni.

Skeyttu eftirfarandi texta inn í HTML ritilinn á þeim stað sem þú vilt, en oftast er auðveldast að setja þennan kóða neðst. Notaðu CTRL+C (Win) eða Slaufa(Epli)+C (Mac) til að afrita textann hér fyrir neðan og síðan CTRL+V (Win) eða Slaufa(Epli)+V (Mac) til að skeyta textann inn í ritilinn. Smelltu svo á OK.
Stærð 450px. Engin andlit birt hjá þeim sem smella á Like:
<!-- Begin: Fb like -->
<script src="http://connect.facebook.net/en_US/all.js#xfbml=1"></script><fb:like id="fblike" href="#" layout="standard" show_faces="false" action="like" font="" colorscheme="light" width="450"></fb:like><script type="text/javascript">document.getElementById('fblike').setAttribute('href', window.location);</script>
<!-- End: Fb like -->
Nánar um breytur má sjá hér: http://developers.facebook.com/docs/reference/plugins/like
LIKE takkinn kominn inn í textaritilinn (hann mun þó ekki sjást).
Farðu svo neðst á þessari síðu og smelltu á VISTA.

Svo þarf að endurtaka öll skrefin fyrir aðrar vörur eða síður.