Fannar Freyr Jónsson
sendi þetta inn á Desember 05, 2010 17:41
Hvernig á að setja Facebook Like takka á síður í Zolon

Finndu vöruna eða síðuna sem þú ætlar að bæta LIKE takka við

Sláðu inn í http://developers.facebook.com/docs/reference/plugins/like í vafrann þinn

Afritaðu alla slóðina á vöruna/síðuna sem þú vilt búa til LIKE takka fyrir. Svertu slóðina í vafranum og smelltu á CTRL+C (Win) eða Slaufa(Epli)+C (Mac).

Notaðu CTRL+V (Win) eða Slaufa(Epli)+V (Mac) til að skeyta slóðinni úr skrefi 3 inn í URL to Like á Facebook síðunni.

Stilltu like takkann eins og þú vilt hafa hann. Þú getur séð hvernig hann breytist hægra megin á síðunni.
1. Tegund takkans.
2. Hvort eigi að sýna andlit þeirra sem smella á LIKE með takkanum.
3. Stærð takkans.
4. Hvort eigi að standa LIKE (Líkar við) eða Recommend (Mæla með).
5. Hvort það eigi að nota ákveðið letur.
6. Hvort takkinn sé ljós eða dökkur.

1. Smelltu á "Get Code"
2. Smelltu á kóðann undir "iframe"
3. Afritaðu kóðann með CTRL+C (Win) eða Slaufa(Epli)+C (Mac).
4. Smelltu á Okay

1. Skráðu þig inn í umsjónarkerfið með því að fara inn á "http://[lénið þitt]/admin"
2. Finndu vöruna/síðuna sem þú ætlar að setja LIKE takkann inn á.
3. Farðu í "Breyta" á vörunni/síðunni.
4. Smelltu á takkann sem er merktur á myndinni.

Skeyttu textanum úr skrefi 6 inn í HTML ritilinn á þeim stað sem þú vilt, en oftast er best að setja hann neðst. Notaðu CTRL+V (Win) eða Slaufa(Epli)+V (Mac) til að skeyta textann. Smelltu svo á OK.

Hér sést LIKE takkinn kominn inn í textaritilinn.
Farðu svo neðst á þessari síðu og smelltu á VISTA.

Svo þarf að endurtaka öll skrefin fyrir aðrar vörur eða síður.